|
Hátæknisetrinu er ætlað að auka og byggja upp fjölbreytni á sviði efnistækni s.s. þróunar, smíði og hönnunar og verða vettvangur annarra þróunar- og samstafsverkefna í rannsóknum og atvinnuuppbyggingu í Skagafirði. Hlutverk hátækniseturs er að taka þátt í og/eða útvega tæki, þekkingu, menntun, fjármuni eða þróunarverkefni til eflingar efnistækniiðnaði á Íslandi. Skipulögð verða verkefni sem byggja upp þekkingu og færni á völdum sviðum og þau unnin í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir. Verkefnastefna HTÍ Hátæknisetur Íslands SES verður vettvangur þróunar og samstarfsverkefna í rannsóknum og atvinnuuppbyggingu í Skagafirði. Setrið verði áfram sjálfseignastofnun. Umfang setursins verði í samræmi við verkefni þess á hverjum tíma og starfsmenn einungis ráðnir inn tímabundið til að sinna skilgreindum verkefnum á þess vegum ef stjórn setursins metur þörf á því. Fjármögnun setursins verður eingöngu miðuð við stök verkefni hverju sinni og mun Setrið sækja um styrki í sjóði, sem og til stofnanna, fyrirtækja og opinberra aðila til að fjármagna þau verkefni sem það tekur þátt í í samstarfi við aðra aðila. Áfram mun öðrum stofnunum og einstaklingum sem áhuga hafa á gefast tækifæri til vinna undir merkjum HTÍ til að koma á fót verkefnum með nafni setursins.
Verkefni HTÍ a) FAB-LAB á Sauðárkróki Að standa fyrir kaupum og fjármögnun á tækjum fyrir FAB-LAB stofu á Sauðárkróki. Samið verður við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Fjölbrautarskóla NV um rekstur og starfsemi stofunnar. b) Trefjagarðar Hátæknisetur Íslands vinnur að framgangi verkefna er tengjast hugmyndum um trefjar í Skagafirði. Með hugmyndinni um trefjagarða er átt við samþættingu, uppbyggingu og þróun þekkingar sem skapar grunn fyrir framþróun í kringum framleiðslu margskonar trefja og notkun þeirra í iðnaði og annarri framleiðslu. Hlutverk setursins verður m.a. að stuðla að og tengjast eftirtöldum þáttum undir heitinu trefjagarðar: Nám í trefjasmíði þar sem unnið verður með skólastofnunum s.s. Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra að uppbyggingu sérhæfðs náms á sviði efnistækni og trefjasmíði. Basalttrefjavinnsla og framleiðsla þar sem gerðar verða tilraunir og eða tekið þátt í verkefnum sem stuðla að framleiðslu á basalttrefjum og framleiðsluvörum sem afurðir út þeim. Önnur trefjavinnsla og framleiðsla þar sem tilraunir verða gerðar og eða tekið þátt í verkefnum sem stuðla að framleiðslu á vörum úr trefjum s.s. koltrefjum og glertrefjum. Að stuðla að tilurð smíðavers með helstu áhöldum og tækjum sem nýtast til smíða á frumgerðum úr trefjum og til minniháttar framleiðslu þar sem því verður við komið. Í smíðaverinu verður einnig möguleiki á að kenna helstu smíðatækni trefja og iðnhönnun úr trefjaefnum. Trefjagörðum er einnig ætlað að auka möguleika Íslands við að laða að fjárfesta í framleiðslu trefja, þar á meðal koltrefja, glertrefja og basalttrefja |
|
Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkrókur
Sími 455 6000 Fax 455 6001 hataekni@hataeknisetur.is
www.hataeknisetur.is